Um dag og veg i lifi Storks

mánudagur, janúar 5

Ammli

Vaknaði með smá hausverk í gær. Átti afmæli og vonaði strax að það hefði verið partíið daginn áður en ekki aldurinn sem hamraði á kollinn. Held það hafi verið eftirmáli veislunnar. Vona það.

Hélt upp á daginn með veislu og fór svo út að borða með flestum úr veislunni. Var mjög sáttur við kvöldið og vona að aðrir hafi skemmt sér eins vel.

Opnaði svo pakkana á sunnudaginn og kom þá ýmislegt skemmtilegt í ljós. Danski fáninn, gömlukallahattur, ævisaga Reynis Pétur (árituð), inneignir, books, vín og fleira gott leit dagsins janúar dimmu og darrinn var mjög sáttur. Fékk meira að segja eitt Storkakort. Fannst samt mest gaman að fá allt fólkið í heimsókn.

En hvað nú?

Jú, bissness as usual og vona að filman hafi verið þrædd.

Tak for meg.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home