Um dag og veg i lifi Storks

fimmtudagur, janúar 15

Tannlæknir á skattstofunni

Þarf að fara á skattstofuna í dag. Þarf að fá skilagreinsseðil til að útfylla og þá þarf ég líka að vita hversu mikið á hann þarf að reiknast, hvort skattkort mitt geti minnkað tíund-tökuna í þetta skiptið o.s.frv. Það er eitthvað með skattamál sem fær kollinn til að kúpla af og hugsa í staðinn um fjarlægar strendur og framandi kokteila.

Finnst ekki gaman að fara á skattstofuna, það er svipuð tilfinning eins og þurfa að fara til tannlæknis. Hef ekki farið til tannsa í örugglega 10 ár en er auðvitað duglegur að bursta tennurnar og borða lítið af namminu. Í þessu tilviki er lyktin sem er á tannlæknastofum nóg til að gæsin setjist á húðina og hrollurinn narti í. Þegar inn er komið er það svo að sjálfsögðu borinn og þetta hriiikalega hljóð sem hann gefur frá sér sem bakkar mér út úr stofunni á ný.

Það eru líka fleiri staðir sem mér finnst ekki sérlega gaman að koma á og reyni í sumum tilfellum sérstaklega að forðast. Fer stundum á elliheimili til að heimsækja afa minn. Þar sé ég marga sem sitja og stara tómum augum út í ekki neitt, glóðin í lífinu horfin úr andlitinu. Það er eins og sumir bíði bara.

Svo finnst mér líka leiðinlegt að koma of snemma, of seint, of langt eða stutt, koma þegar ég var í raun að fara eða koma bara alls ekki...

Svona er þetta bara og hvað getur maður gert?!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home