Aspeinn Aspein
100 ára afmæli heimastjórnar.
Ok. Auðvitað átti Ólafur að vera heima á þessu afmæli og auðvitað hefði verið viðeigandi að hann hefði átt að taka þátt í hátíðarhöldunum á einhvern hátt.
Má því segja að báðir aðilar (forseti og forsætisráherra/ráðuneyti) hefðu getað staðið sig betur. Það sem er hins vegar augljóst er að þetta mál eru leyfar og sýnishorn af eldri pólitískri og persónulegri gremju milli manna (og flokka).
Það sem er algjörlega óhæft og óviðeigandi er að við hin þurfum að hlusta á þá karpa um þetta fyrir allra eyrum í fjölmiðlum og á þann hátt að þeir tala niður til og niðurlægja hvern annan og embætti sín í leiðinni.
Það er lítil fagmennskan sem báðir aðilar sýna í þessu máli og báðum til vansa. Þeim væri nær að stíga upp fyrir sandkassabrúnina og sjá útsýnið yfir restina af leikskólavellinum.
Annars var Guðni Ágústsson langnettastur í þessu máli. Í hádegisfréttum útvarps í gær (ca) :
Fréttamaður: Guðni, hvað voru Halldór og Ólafur að gera erlendis á 100 ára afmælinu?
Guðni: Uhmmm þeir voru... að.. gegna ... embættum fyrir Ísland.... á erlendri grundu!
Fréttamaður: En það virðist vera eins og þeir séu báðir bara á skíðum.
Guðni: Uhmmm... það er gott fyrir líkamann!
Fagmaður og á heima á listanum hér fyrir neðan. Hinir ekki.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home