Slitið uppáhald
Ég á ýmislegt uppáhalds. Sumir hlutir sem eiga bara forgang þegar maður stendur frammi fyrir því að velja á milli, hafna og velja. Hvað það er sem gerir þetta uppáhalds að uppáhaldi er ekki alltaf á tæru. Og þó, jú kannski. En þetta litla, þetta eina atriði sem gerir uppáhaldið, getur stundum verið undarlegur hlutur - óvenjulegur og óvæntur en það skiptir auðvitað engu máli. Tilgangurinn helgar meðalið stundum.
Til dæmis föt. Ég á föt sem eru í uppáhaldi þó að sum þeirra séu farin að láta allverulega á sjá.
Keypti Puma strigaskó í Kolaportinu (óvænt útspil þar) fyrir ca 2 árum síðan. Beis litaðir með dökkrauðum röndum, mjúkur botn og akkúrat skór. Þeir eru t.d. orðnir frekar lúnir að sjá og hugsanlega má segja að lyktin sé ekki eins og hún var þegar ég keypti þá. Samt svo vel gengnir til og mjúkir að fúllyktandi arka ég oftar um, en ekki.
Á buxur sem eru akkúrat líka. Einar gallabuxur og einar úr fínni efni. Þær fyrri snjáðar við skálmarnar og með gati í hægri vasa. Hinar með gati á vinstri vasa og talan laus. Báðar liggja þær þó ofurvel í strengnum. Ofuránægður. Uppáhalds.
Kaupi mér auðvitað ný föt við og við en af einhverjum völdum hefur það reynst mér um megn að taka sumt af því í uppáhald og í forgang á gamla uppáhaldið. Geri enn upp á milli og ekkert við því að gera. Sumir hlutir eru bara með það. Á meðan hanga þó öll fötin, uppáhalds og sum hver í algjöru uppáhaldsleysi, saman í veggskápnum mínum, teljandi mölkúlur og bíða síns vitjunartíma. Við og við opna ég dyrnar og renni út skúffunum en enda svo oftast í sömu múnderingunni. Það er eins og það sé einhver trekt í fataskápnum sem leiðir mig alltaf á sama staðinn. Undarlegur andskoti.
Þrátt fyrir þessa goggunarröð sem leiðir sum fötin alltaf á toppinn og kroppinn og önnur aðeins dýpra inn í skápinn og skúffu; á ég erfitt með að farga fötunum. Að henda þeim fötum sem þjást af uppáhaldsleysi á ég erfitt með þrátt fyrir allt. Veit ekki hvað það er. Undarlegur andskoti.
Lítið uppáhald í því.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home