Um dag og veg i lifi Storks

þriðjudagur, febrúar 10

On/Off gaur

Hringdi kona í mig í gærkvöldi. Kurteis og elskuleg en ég heyrði strax á málróm hennar að hún var að reyna að selja mér eitthvað. Fjaðrirnar risu og goggurinn varð þurr er ég hváði jú, þetta er Darri. Konan vann hjá einhverju líftryggingarfélagi og hún vildi gjarnan bjóða mér nýja bílatryggingu því hún var fullviss að sú sem ég væri með fyrir væri of dýr fyrir mig.

Gott mál. Þannig séð. Málið er samt bara það ég nenni ekki, hef ekki orku í, né ögn af vilja eða snefil af áhuga á að velta þessum málum fyrir mér. Lífið er bara of stutt stundum eins og fyrir sumt annað. Það getur vel verið að eftir vagg og veltu og nokkra kaffibolla með ráðgjafa þessa fyrirtækis að þá hefði það komið í ljós að ég gæti sparað nokkrar krónur en... ég hreinlega neeeenni þessu ekki. Sagði því, veistu ég held ekki. Ég er svo rooosa ánægður þar sem ég er. Í fyrsta lagi, veit ég varla hvar ég er né hvort það sé sérstaklega gott að vera þar. Skipti mig ekki meginmáli í þessu tilviki. Sauður. Kannski.

Fór að spá. Ég er kannski frekar einfaldur hvað varðar marga hluti. Ég þarf nefnilega ekki endilega alltaf að vita um innihald, tilurð og eiginleika hlutanna heldur einungis hvort þeir virki eða ekki, séu til staðar eða ekki. Allavega á þetta við um suma hluti. Tökum dæmi.

- Ég veit að bíllinn minn er tryggður. Gott mál punktur og basta.

- Bíllinn minn er með fjögur hjól, gír, bremsu og gjöf. Virkar og þarf ekki að vita af hverju.

- Í tölvunni get ég sent e-mail og fengið e-mail. Þarf ekki að vita hvar eitthvað er hýst eða úthýst og hvað ég má hafa mörg megabæt í minninu, þessa innra ytra megin eða álíka.

- Ég tek upp símann og hringi til Ástralíu. Þarf ekki að vita um bandvíddir, skref eða næturtaxta.

- Hlusta á góða músík en skil ekki hvernig í andsk hún getur verið klesst á svart gúmmí. Allt í lagi. No prob. Fínt lag.

Osfrvosfrv

Auðvitað kitlar stundum á forvitninni en yfirleitt rölti ég þó sáttur um þennan einfalda garð minn. Mín skoðun líka sú að maður kemst ekki yfir að vita allt. Ef ég gerði það það, væri ég heldur ekki hér heldur þar... eða allt allt annars staðar.

Ég bý í on/off heimi og kveiki og slekk að vild. Er on/off gaur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home