Bjarni og enski boltinn
Mikið yljar það mér að heyra Bjarna Fel lýsa enska boltanum aftur.
Minnir mig á laugardaga í gamla daga þegar enski boltinn var á dagskrá klukkan þrjú. Þegar ég lagðist í annan enda græna hornsófans (sem síðar varð brúnn sem síðar varð bleikur) gegnt pabba til að horfa á ensku krassspyrnuna. Við horfðum á rauða ljónið birtast á skjánum í KR búningi og heyrðum undirspilið sem allir þekkja - Dududududurudduddu o.s.frv. Við horfðum á allar hetjurnar leika listir sínar á völlum Englands og síðar fengu þær að reyna sig aftur á malarvöllum Breiðholtsins það sem eftir var vikunnar.
Ég man eftir því eitt sinn þegar pabbi gleymdi að kveikja á ofninum eins og mamma hafði beðið hann um; til að steikja kjúklinginn á 220 gráðum. Gleymdi sér einhvers staðar á milli hælspyrnu Sammy Lee og markvörslu Gary Bailey, fattaði það í seinni hálfleik og setti allt á fullt. Grillaði kjúklinginn á 300 gráðum til að vinna upp glataðan tíma áður en mamma kæmi heim; settist svo aftur upp í sófann og brosti yfir kænsku sinni. Augun mændu aftur á enska boltann en athyglin hafði reyndar aldrei náð almennilega inn í eldhús - þar sem kjúklingurinn beið svartur eftir mömmu. Hefðum pantað pizzu ef það hefði verið hægt 1985.
Í þá daga var enski boltinn aðeins sýndur einu sinni í viku og nú eins og þá sé ég enska boltann líka bara einu sinni. Vikudagurinn er mánudagur, þegar Rúv sýnir ensk mörk helgarinnar. Bjarni er eins og áður í essinu sínu og er eins og björn sem lagt hefur klóm sínum um hríð en tekið þær fram að nýju ásamt nýfægðum vígtönnum. Bjarni hefur þannig dustað rykið af gömlum frösum sem hann beitir af eldmóð eins og fyrir framan græna sófann í gamla daga. Allir aðrir lýsendur lúta í gras fyrir enskum Bjarna Fel og verða þeir að fara að taka á honum stóra sínum.
Það er næsta víst.

5 Comments:
Snilld!!! Sammála þér með Bjarna Fél. Endalaus darraðardans með kjúklinginn hjá ykkur.
Ali Daei
1:28 e.h.
Hey hinn íranski Ali Dai gamli svingur úr Bayern Munchen! Wilkommen.
Já kjúklingar, viðbrenndir eða gómsætir; saga Johansen ættarinnar : )
Ps. El hamunij atsabah!
4:31 e.h.
Uss þar skall sko hurð nærri hælum að fjölskyldan hefði orðið fyrir hnjaski við KJÚKLINGAÁTIÐ.
Eruð þið öll svona Johansen ættin ???
11:20 f.h.
Já þetta er svona í danska legg fjölskyldunnar mar. Samt reyndar aðallega bara ég.
11:59 f.h.
íiiiiiiiiiiiiiiiiiihíhíhíhihhih
2:29 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home