Storkurinn
,,Reitur” er vinsæl æfing í fótbolta. Reitur gengur út á það að nokkrir leikmenn halda bolta sín á milli á stuttu svæði á meðan færri leikmenn reyna að ná honum af þeim. Yfirleitt eru 4 á móti 2 í þessum leik. Fyrir nokkrum árum síðan var ég í ,,reit” á æfingu og var einn af þeim sem áttu að reyna að ná til boltans. Í einu tilviki tókst mér það með því að slæma löngu leggjunum á einhvern undraverðan hátt til boltans. Binna félaga mínum gramdist þetta og hafði þá þessi orð; Djööös storkalappir ertu með mar! Síðan þá hef ég verið Storkurinn og verð líklega enn um sinn.
Fyndið með Storka og nafngiftir, kaldhæðni, nagla á höfuð og bros út í annað. Hlutverk, mýtur, gamansöm einkenni og undarlegan farangur í gogginum. Viðurnefni sem áður virtust undarleg verða allt í einu aldrei eins viðeigandi. Allt mjög skemmtilegt og svolítið skrítið kannski líka.
Minni svo á Garnverslunina Storkurinn á Laugavegi 57 ef einhver vill kaupa gott garn.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home