Hnetur og ættingjar þeirra
Þooooli ekki hnetur. Held reyndar að ég þoli þær alveg en ég get bara ekki fyrir mitt litla hnetufría líf borðað þær. Þegar ég afþakka hnetur er ég alltaf spurður hvort ég sé þá með ofnæmi fyrir þeim en svara því alltaf neitandi. Einna helst að spurningin valdi mér útbrotum. Mér finnst hnetur bara vondar.
Í kollinum liggja þó minningar á glámbekk um andartök þegar hnetur bárust inn fyrir tanngarðinn, snertu tungubroddinn og hleyptu bragðlaukum fussandi og sveiandi á flótta. Alltaf sór ég að þetta hefði verið óvart og það var líka rétt í hvert einasta skipti. Ég hefði aldrei gert svona lagað viljandi. Andartök í kökuboðum, framandi sjoppum eða jafnvel bara heima við. Bara vissi ekki betur eða það sem verra var; fékk rangar innihaldsupplýsingar!
Eitt sinn átti ég andartak aftan í gamla BMW-inum hjá pabba. Amma var í heimsókn frá Danmörku og gaf mér súkkulaði úr tollinum. Kurteis og glaður gleypti ég bitann og sat svo með tárin í augunum alla leið upp í Breiðholt. Þvílík kvöl. Finndist rétt að tollverðir gerði hnetusúkkulaði upptæk og leituðu á öllum ömmum með góðan tilgang í farteskinu.
En þetta er ekki einfalt. Hnetur eiga fjölmarga ættingja sem eru sumir hverjir alveg eins illgjarnir og já, bragðvondir. Möndlur, píkant, krókant, núggat og hvað þessir ættingjar heita allir, eru jafnvel lævísari en höfuð fjölskyldunnar því tign þeirra felur þá neðst í innihaldslýsingum og stundum gleymist hreinlega að nefna þá.
En ef það væri nú bara nóg að láta hneturnar eiga sig. Það er líka lyktin. Púff. Að vera í kringum mat sem t.d. er lagður undir feitt lag af heitri hnetusósu getur verið alveg jafnslæmt. Heitar hnetugufur fylla loftið og ráðast á vitin af hreinu miskunnarleysi, grafa sig niður öndunarfærin og slá þig í magann að innanverðu. Bumbult.
Hnetuátur gera sér ekki allar grein fyrir þessu eða skyldleikanum við reykingarnar. Þótt þú reykir ekki sjálfur geturðu orðið fyrir óbeinum reykingum og það sama á við hnetuátið. Ég borða ekki hnetur en verð stundum fyrir óbeinum hnet... ingum??

8 Comments:
Hnetugufa .... Darri - HNETUGUUUUUUUUUFA... hvað er það minn kæri ??
Djö er freistandi núna að sega - "Þú ert hnetugufa" ! ! En jeg ætla að láta það eftir einhverjum öðrum.
Mjér hefur nú aldreigi þótt hneturnar góðar, en hef jeg látið mig hafa það að jéta þær er þær í mat mínum leynast... Finnst þær bara ágætar núna..
Sama er að segja um t.d. ólífur.. Fannstþær vibbi, en gaf þeim sjéns, afur & aftur. Nú finnst mjér þær alveg ágætar bara.., sérstaklega í ítalíu. :-)
Þetta er allt í hausnum á þér - matvondi drengur...
2:21 e.h.
þetta er ekki spurning um að láta sig hafa þig heldur lífsstíl. Annað hvort er maður hnetugufa eða ekki. Ég er það ekki min ven ;-
10:33 f.h.
þetta er ekki spurning um að láta sig hafa þig heldur lífsstíl. Annað hvort er maður hnetugufa eða ekki. Ég er það ekki min ven ;-
10:33 f.h.
Þú ert laaaaannnnnnng mesti gikkur sem ég veit um! Borðar ekki hnetur (sem eru reyndar alveg eins og kjúklingur á bragðið) né sveppi né ost (nema að hann sé bræddur!) né fisk né...né...né......
Mæli annars með að þú prufir hnetusteik með sveppasósu og þá er ei aftur snúið....mmmmhhhhhh
Eins gott að þú drekkur latte:)
Kv.
G.
6:23 e.h.
: ) Hnetur alveg eins og kjúklingur! Þú ert nú meiri grallaraspóinn Gunni! íhíhíhí
10:21 f.h.
íiiiihíhíhíhihihhh
11:02 f.h.
heyr heyr heyr.... eins og talað út úr Húsavíkurhjartanu. Þú mátt heldur ekki gleyma því að fólk hefur dáið af því að borða hnetur. Dáið segi ég !
kv. Þóra
11:31 f.h.
Nákvæmlega. Hnetur, matur djöfulsins!
12:53 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home