Ungur fyrir aldur fram
Sumir verða gamlir alltof snemma. Stundum er það vaxandi bumba sem gefur merki um það eða annað í útliti viðkomandi sem breytist. Oft eru merkin þó greinilegri í öðrum eiginlegri þáttum hjá fólki. Í viðhorfum og staðhæfingum, athöfnum og orðum.
Ég man t.d. eftir strák sem sagði eitt sinn um stelpu sem hann var nýbyrjaður að hitta, að maður yrði nú að eiga konu sem maður gæti tekið með þegar maður færi út að borða með forstjóranum. Þetta sagði hann blákalt og alvörugefinn og reyndi þannig að verja það að hann væri að hitta stelpuna. Stefnumót sem enginn hafði reyndar sveipað nokkrum efa. Nema hann. Þau eru held ég enn saman nú 10 árum seinna og gera örugglega frábæra hluti í dinnerpartíum.
Ég man að mér fannst þetta viðhorf hans mjög undarlegt þó að ég hafi ekki sagt neitt. Auðvitað átti hann við það að hún yrði að vera nógu klár og frambærileg í orðaskiptum en að meta væntanlega kærustu sína á þennan hátt var mér svo fjarlægt og framandi. Hvernig gat þetta skipt hann mestu máli? Og hvernig gat hann verið að hafa áhyggjur af svona málum aðeins tuttugu ára gamall? Hann hafði séð lengra en fyrsta deit, fyrstu þrjá mánuðina og framyfir giftingu. Séð skólagöngu sína og framhaldsnám og nokkurra ára samviskusamlegt strit fyrir gott fyrirtæki með forstjóra. Hann sá fram á góðan kvöldverð eftir fjölda ára með lagskonu og stórlaxi.
Þetta var strákur sem naut ekki augnabliksins heldur framtíðarinnar í dag án þess að blikna. Með stelpu sem vissi ekki forsendur hans eða hlutverk sitt.
Lífið er of langt til að eldast of snemma en alltof stutt til að verða ungur of seint. Allt of seint þá.

2 Comments:
Ert þú kannski vice-vers ??? Gamall fyrir aldur framm. Þá er jeg á engann hátt að tala um kvonfang þitt minn kæri kæri storkur..
Bara tala svona - þú veit... Þú ert ekkert fyrir það að flækja hlutina með nýjustu tækjum & tólum & uppfinningum... Heldur meira kannski fyrir þetta 'gamla góða' Þetta 'klassíska'..
Eða er það ekki.
1:17 e.h.
djö öööööööööömlegur gaur !!!
Ég nýti þá tækni sem ég þarf og ekki skrúfu meira. Held ég sé alveg mátulega tékkneskur leikmaður sko.
2:39 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home