Um dag og veg i lifi Storks

fimmtudagur, september 16

rúv í gær

Dagskráin byrjaði ágætlega í gær.

Á eftir viðtali við hæglyndan nýskipaðan forsætisráðherra birtist Ed á skjánum. Þáttur sem (verð ég að viðurkenna) ég hef dottið bara dottið inn í. Kannski vegna þess að það er miðvikudagur og þá á ég frí á æfingum (nema þegar engin eru fríin) en kannski vegna þess að Ed er látlaus, vel lesinn og leikinn. Stundum jafnvel fyndinn. Ég dorgaði allavega og það beit á.

Þá var komið að heimildarmynd um Níl og ég skrúfaði niður í hljóðinu og kveikti á tölvunni. Með tölvubjarmann í andlitinu sá ég þó við og við glitta í krókódíla, flóðhesta, Faraóa og eyðimörk. Heyrði þó ekki neitt nema stöku andvarp Ingibjargar sem steinsvaf í sófanum við hliðina á mér.

Þetta 70 sjóv kom næst og ég náði mér í ís. Fínn þáttur og góður með ísnum. Eða öfugt. Eftir 10 fréttir sem virðast stundum aðeins vera þar af gömlum vana eða vegna opinbers skipunarbréfs kom svo rúsína Rúv pylsunnar í þetta kvöldið.

Heimildamynd um hollensku birtuna – myndlistarþáttur. Ég hélt kannski að þátturinn myndi fjalla um vorbirtuna í hollensku listalífi á einhverjum áratugnum og bera þannig sæmilega orðlíkingu en Hollendingar gátu komið mér á óvart. Þátturinn fjallaði bókstaflega um hollenska birtu. Heill þáttur um hollenska birtu!! Snilldarmúv. Horfði samt minna, hripaði meira.

Fíla, þrátt fyrir þetta Rúv og einvalið sem dagskrá einnar sjónvarpsstöðvar býður upp á. Gefst meiri tími til að skrifa um skrítna hluti.

Eins og hollenska birtu.

3 Comments:

Blogger BJ said...

Er þetta það sem þú notar vikufríin þín í ??

AÐ GLÁPA Á SJONVARPIÐ ! ! !! öööööössssssss darralingur ikk godt. Þá er nú skárra að stunda CM !

11:36 f.h.

 
Blogger Darri said...

Svona er þetta mar, mand bliver gammel sku!

Helt i orden.

1:47 e.h.

 
Blogger Darri said...

Nei, got to love it mar!

Þarna byrjaði þetta allt saman, Staupasteinn, enski boltinn og Dallas! ;-

12:06 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home