Olympic games
Er búinn að horfa svolítið á ólympíuleikana. Hef alltaf haft gaman af og hrifist af flestum íþróttum enda ólympíuleikar. Íþróttir sem ég venjulega nenni ekki að horfa á eru áhugaverðar því allt er í húfu eða þar um bil. Þetta eru ólympíuleikar og litróf tilfinninga birtast manni á skjánum. Þetta snýst nefnilega ekki bara um íþróttirnar. Fékk svona dejavu tilfinningu þegar ég horfði á Þórey Eddu lenda á stangastökksdýnunni, líta upp í stúku til þjálfarans með glampa í augum og furðusvip – er mig að dreyma? Minnti mig á sömu myndir af Völu 4 árum áður.
Logi er nú meiri kallinn. Logi litli prakkarakall er smellinn í stúdíóinu á kvöldin í ólympíuþættinum enda mikill bragðarefur eins og sást og last í Séð og heyrt. Í þættinum í gær lét hann Audda og Adolf Inga fara í kapp um það hver væri fyrstur að drekka Gatorade. Reynt að kreista fram fyndn með öllum ráðum. Adolf spurði á meðan hann þurrkaði safaslettur úr skyrtunni, en fyrir hvað ertu að ná þér niðri á mér? Kannski var Logi að hugsa um það þegar Adolf var ráðinn í stað Loga á íþróttadeildina um árið? Veit ekki. Fannst spurningin allavega fyndin. Veit ekki alveg með Loga. Það er eitthvað við þetta brakandi fliss hans sem gerir mig órólegan. Eins og myndin á skjánum sé ekki alveg ekta. Veit ekki.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home