Heimsfræg stöðumælasekt?
Þurfti að skreppa niður bæ í hádeginu í smá stúss og þegar ég kom aftur að bílnum stóðu þar við hliðarspegilinn 3 hvítar stelpur og 1 blökkumaður sem skrifaði í litla bók. Ég hélt fyrst ég væri að fá stöðumælasekt en sá svo að þarna var leikarinn Forrest Wittaker mættur og var í óða önn að skrifa stelpunum eiginhandaráritun.
Hmmm... eða hvað, hugsaði ég. Kannski er Forrest bara að æfa nýtt hlutverk pissed off stöðumælavarðar í Brooklyn með óuppgerða fortíð og er að æfa sektarskrifin á mér!? Ég tók því engan sjens, hentist inn í bílinn og ók í burtu.
Maður veit aldrei.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home