Hæ
Hef þagað þunnu hljóði frá því fyrir áramót. Ekki vegna þess að ég hafi verið eitthvað sérstaklega þunnur eftir glens gamlárskvölds heldur hef ég bara þagað – þunnu.
Eiginlega hef ég ekki haft neitt að segja og hef því ekki skrifað. Ég hefði kannski getað sagt frá því að ég var með flensu fyrstu viku nýs árs, átti enn eitt afmælið og tróð svo í kassa í nokkra daga. Flutti svo kassana í nýtt póstnúmer og stend nú á stól og mála í kverkar. Ég hefði getað sagt frá þessu en reiknaði ekki með áhuganum. Ætla því ekkert að segja frá því.
Fá orð eru nefnilega betri en fleiri ef maður hefur ekkert að segja.
Það eru bara nokkur orð um ekki neitt.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home