Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, ágúst 31

Stór orð

Orð eru til alls fyrst. Og síðast.

Yfir venjulegan dag gasprar maður, hummar og blaðrar heil ósköp. Sumt af viti, annað ekki og stundum við sjálfan sig en yfirleitt aðra. Þúsundir orða í hundruðum setninga sem koma okkur í gegnum daginn. Búa til, byggja upp og rífa líka niður.

1.000 Írakar dóu í dag. Eitt þúsund! Og bara af því að einn maður sagði nokkuð sem hann átti ekki að segja. Í mannhafi trúaðra Súnníta sagðist einn maður halda að hann hefði jafnvel séð mann með sprengju. Eldfim orð með stórar afleiðingar.

Í dag sagði ég ekkert sem hafði neina sérstaka þýðingu held ég.

Og þó.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home