Um dag og veg i lifi Storks

laugardagur, október 22

Raunveruleikurinn

Flæðið af raunveruleikanum er ótrúlegt í sjónvarpinu. Allt er raunveruleikans og leiknir þættir sem endurspegla raunveruleika eru ekki lengur nógu raunverulegir. Óraunverulegt. En nóg um raunveruleika í bili.

Leiðir listin fólkið – eða er það öfugt?

Listin og fólkið á bakvið hana - skáldin, málarar, hugsuðir og aðrir hafa sinnt því hlutverki að blinda okkur hin. Sýnt okkur texta, striga eða hugmynd sem breytt hefur því sem við hugsuðum eða áður héldum. Sýnt okkur heiminn og næsta nágrenni okkar með nýjum formerkjum – sett blindu á hið augljósa, bent þess í stað á hið nýja og óvænta.

Listin gerir þetta finnst mér. Á allavega að gera það. Sett á blað eða í lit – skáldskap eða mynd sem segir sannleikann um sjálfa okkur. Þótt listin fari stundum lengri leiðina er síðasti spölurinn samt svo góður, brilliant og upplýsandi að það er þess virði. Þegar vel tekst til.

Fólk þarf á skáldskapnum að halda til að segja því hvað það er vitlaust eða gáfað. Fallegt eða ljótt. En stundum er líka gott að hafa skáldskapinn til að skemmta okkur, hræða, græta – og e.t.v. það mikilvægasta. Að flýja. Fá frí frá sjálfum okkur. Smá hvíld.

En þetta er kannski liðin tíð? Hver þarf skáldskap?

Og þá aftur að sjónvarpinu og raunveruleikaþáttunum þar sem nýir þættir virðast spretta upp í hverri viku. Venjulegt fólk í venjulegum aðstæðum eða skrítið fólk í undarlegum. Allt svolítið undarlegt – en samt venjulegt og gríðarlega vinsælt! Leikurinn á undanhaldi, virðist ekki eiga roð í veruleikann.

Og það er kannski bara málið. Fólk er orðið þroskaðra og hefur ekki lengur þörf fyrir að flýja raunveruleikann. Nennir bara ekki lengur að leika sér.

Segi svona.

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Vóóóóó maaar

Voða artsy farsty blogg var þetta!
Aaaaaaaaallt of djúpt fyrir mig mar.

Finnst ég þurfa að setja á mig gleraugu og kveikja í pípu áður en ég les svona blogg frá þér.

-Kári alþýðumaður

12:24 e.h.

 
Blogger Darri said...

Mér hefur alltaf fundist gleraugu klæða þig vel mr. K-man :)

12:24 f.h.

 
Blogger Darri said...

Það er kannski helsti raunveruleikurinn í þessu öllu saman.

Nei,nei ég reyni kannski að pína mig aftur að blogg-lyklaborðinu.

Þó ekki væri nema til að kæla þig aðeins undir heitri afrískri sólinni Stjáni minn!

7:35 e.h.

 
Blogger BJ said...

er þessi raunveruleiki nokkuð að fara með þig mister poppoking, þarna í landinu kalda ???

bara spöggleringasjónir hérna í tíksuborginni...

12:14 e.h.

 
Blogger Darri said...

Tja... kannski fer hann bara með mig á einhvern góðan stað.

7:29 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home