Um dag og veg i lifi Storks

laugardagur, nóvember 19

Quentin

Æji maður. Eitthvað stakk það mig að skoða bls. 54 í Fréttablaðinu í dag.

Quentin Tarantino á hnjánum á nýju parketi líklega einhvers staðar í Lindahverfinu, skríkjandi í myndavélina með pappavíkingahatt á kollinum – og Jóhannes Fjörukráarvert með sverð, í það veginn að vígja hann til Víkings. Og önnur mynd þar sem Quentin situr í sérstökum ljósmyndastól á Fjörukránni með skjöld, sverð og grímu. Skælbrosandi á bak við hana.

Quentin fallinn (eða leiddur) í túristagildrur bæjarins. Upplifir allar klisjur Íslands í nokkurra daga rússíbanaferð um láglendi landsins.

Veit ekki.

Einhver synd í því að sjá Quentin, þennan meistara jaðars – snilling utan vega, feta í fótspor rútufylli þýskra túrista sem allir vilja mynd af sér með svona alvöru íslenskum víkingi. Og aumingja maðurinn heldur að þetta sé eitthvað sem Íslendingum finnist frábært og kúl. Að Fjörukráin sé staðurinn sem Íslendingar koma á eftir erfiðan vinnudag til að slaka á og spjalla við aðra Víkinga. Leggi skjalatöskunum og setji upp hornin.

Lítið íslenskt í þessu finnst mér. Afhverju fóru þeir ekki frekar með hann í fiskitúr með trillukarli eða skytterí með rjúpnaveiðimanni. Eða á handboltaleik í Höllina eða á Alþingi. Eða á Dominos og Bónusvideo. Eða upp Esjuna eða bara í hangs á Súfistanum. Það er líka íslenskt. Quentin fékk póstkortatúrinn um landið - sá aðeins glansmyndirnar framan á en sökkti sér ekki í smáa letrið á bakhliðinni.

En þetta var víst bara skottúr með dagskrá upp á hvern dag. Og hann yfirgaf landið víst yfir sig ánægður og sáttur. En kannski pínulítið ringlaður líka. Sé hann fyrir mér út í Leifsstöð með úttroðna poka úr Rammagerðinni, klæddan í alklæðning frá 66° Norður og með uppstoppaðan Lunda í handfarangrinum – hugsandi What the hell was that!? Finnist eins og hann hafi verið að dreyma um Íslenska víkinga, álfa og geðgóðar ljóshærðar stelpur.

En Quentin er sáttur og þá erum við auðvitað sátt líka. Sé fyrir mér falleg og söluvænleg samtöl hans við félaga sína um Ísland, þegar hann kemur heim aftur. Og þeir spyrja hann: So what do the call a Bic Mac? – og hann svarar A Godburger og allir hlæja.

Nei segi svona. Hef nú meiri trú á Quentin en það. Er viss um að samtalið yrði einhvern veginn svona:


So what do they call a Big Mac? - og hann svarar I didn´t go to MacDonalds, I just stopped at Nonnabiti and got a boat. They use a special Nonnis sause – and fucking drown them in that shit.

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Af hverju rölti hann ekki í Nóatún og fékk sér nokkur upplæri? Öööööömurlegur gaur mar!

Kv.

Zed

11:14 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Maðurinn var í Amsterdam og datt ekkert betra í hug en að fara á McDonalds og í bíó! Fjörukráin og uppstoppaður Lundi hljóma bara nokkuð vel, hefði frekar boðið honum reyktan Lunda og muffins en........

Kv.

M. Wallace

11:22 f.h.

 
Blogger Darri said...

Ok Lundinn reyndar nettur.

Myy man in Inglewood!

7:05 e.h.

 
Blogger BJ said...

Whadddí hjéeeeell whaz thadd???

I'm gonna shoot everybody - æj neij vitlaus mynd...

Afhverju fékk hann sér ekki bara ítalska pizzu & Franziskaner bjór ti lað skola henni niður.. Allavega ætka jeg að gera það á eftir....

íiiihíhíhíhíhih

5:03 e.h.

 
Blogger Darri said...

Neee mar. Það er alltof fyrirsjáanlegt. Fáðu þér frekar þýska pizzu og ítalskan öl. íhíhíh

11:00 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

ihihihihihi - thu ert nu meiri grallarinn Darri minn.... Thyska PIZZU...

Kannski bara Bradwurst & Vino Rosso fra Toscana ! ! ! HAAAaa


Kv. BJJ

1:34 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home