Bón á bónstöð
Finnst ég alltaf vera að sjá langar biðraðir bíla fyrir utan bílaþvottastöðvar. Minnir helst ég rússneskar matarmiðaraðir sem maður hefur stundum heyrt um. Næ þessu ekki alveg. Ef maður ætlar að þvo bílinn sinn þá rúllar maður á þvottastöð en ef það er hundruða metra löng röð þá þvær maður bílinn sinn á morgun.
Hananú og alveg á hreinu!
Annars gætu bónstöðvar e.t.v. reynt að finna eitthvað til að stytta fólki biðtímann. T.d. gætu þær útvíkkað þjónustu sína og auglýst stöðvarnir sem tilvaldar fyrir bónorðið stóra.
,,Bón á meðan þú bíður... eftir bóni!,,
Hægt að útbúa skemmtilega aðstöðu með sófum, miklu úrvali af hnéhlífum auk ráðgjafar um hringaval.
Nei, segi svona.
God weekend.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home