Um dag og veg i lifi Storks

þriðjudagur, janúar 6

Stirður storkur

Fór á fótboltaæfingu í gær, þá fyrstu á þessu ári og að ég held aðeins þá þriðju síðan í sept/okt. Neita því ekki að ég er frekar stirður storkur í dag. Svo er hlaupatest í kvöld, leikur á morgun og æfing fimmtudag. Nóg að gera. Nýtt tímabil kannski að hefjast hjá mér. Blendnar tilfinningar með það samt. En svona er þetta. Blendinn storkur getur verið ágætur storkur líka.

Myrkrið er eins og flauel stundum, sagði einhver. Mér finnst þó flauelið stundum vera eins og dagsljósið. Beislitað eins og buxurnar mínar.

Svolítið tóm sem fylgir nýju ári kannski. Eins og það þurfi nokkrar fílefldar hestakerrur til að draga mann af stað, áfram eftir veginum, um akurinn, upp klettana og niður að strönd aftur. Jólin að baki, áramót að baki, afmæli að baki.

Flauelið framundan.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home