Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, janúar 7

Dottað í bíó

Á það til að dotta, og jafnvel sofna alveg í bíó. Yfirleitt er það ósjálfrátt og óundirbúið en það hefur reyndar líka komið fyrir að blundurinn hafi verið fyrirfram samþykktur. Úlpan upp í höku, hausinn skorðaður af og draumurinn hafinn. Ahhh...

Ég hef upplifað nokkrar góðar dott myndir í gegnum tíðina og bara til að nefna nokkrar ...

Batman 2
Fullt af góðum leikurum í bjánalegum búningum í drungalegustu borg dauðans. Hetjan í sokkabuxum, býr í helli með butler. Michelle Pfeiffer reyndar nett minnir mig en myndin hrikaleg.
Óundirbúið en algjörlega samþykkt.

Dirty Rotten Scoundrels
Ágæt mynd með Martin og Caine en ég gat bara hreinlega ekki haldið mér vakandi. Sat efst í stóra salnum í Háskólabíóinu og hausinn kinkaði kolli ótt og títt ofan í bringu og aftur upp.
Ósamþykkt.

Star Wars 4 (eða 1? Allavega ein af nýju myndunum)
Vá hvað þetta var leiðinleg mynd. Tæknibröltið gerði út af við snilldina í einfaldleika eyðimerkurinnar og sagan minnti helst á fund Evrópubandalagsins um höft í verslun á fríhafnarsvæðum meðal nýrra aðildarríkja Evrópubandalagsins. Eða álíka.
Samþykktur blundur með miklum meirihluta!

Lord of the Rings 3 í gær. Byrjaði kl. 10 og ég var kominn heim kl. 2! Auðvitað ekki léleg mynd en fannst hún held ég síst af þessum þremur. Átti stundum erfitt með mig og kærastan kom eiginlega í veg fyrir að ég sofnaði alveg. Var reyndar að dotta svolítið í lokahlutanum og fannst myndin svolítið langdregin. Hafði líka fátt nýtt fram að færa miðað við mynd númer 2. Fróði, Sammi og Gollrir á röltinu í góðum fíling og hinir að safna liði, bíða eftir árás. Fáar nýjar persónur eða ný atvik. Smá vonbrigði. Ágætur blundur samt.
Óundirbúinn, eiginlega ekki samþykktur en góður samt.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home