Um dag og veg i lifi Storks

þriðjudagur, janúar 13

Skyndibitarassar

Sumir og sumar fá það komment að vera með MacDonalds rass sem þýðir þá að hann sé helst til of stór og jafnvel feitur. En hvað er þá góður rass? Er KFC rass hugsanlega betri en MacD rass en verri en t.d. Subway rass?

Væri e.t.v. hrós að segja við einhvern að hann eða hún sé með geðveikt flottan Grænan kost rass!? Veit ekki. Kannski. Eflaust getur einhverjum þó fundið GK rassarnir aðeins of litlir, vilja hafa aðeins meira kjöt á beinum. Nonnabita rass væri þó líklega of mikið, Dominos rass líklega líka en Deli rassinn gæti alveg verið málið.

Þetta er þó auðvitað allt háð áliti hverju sinni. Sumir vilja Argentínu rassa og aðrir Bæjarins bestu rassa, þannig er það og það er allt í lagi. Maður verður bara að finna sinn rass í skyndibitakeðjunni.

Ég sjálfur er líklega með svona frikadellu og smörrebröds rass.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home