Um dag og veg i lifi Storks

mánudagur, janúar 12

Árið?

Var að velta fyrir mér.. Hvað getur maður sagt gleðilegt ár langt fram í janúar? Er einhver ein regla til um þetta?

Þetta er týpískt vandamál svona fyrstu vikurnar í janúar. Maður hittir kunningja og segir ýmist gleðilegt ár eða veltir fyrir sér hvort maður eigi að gera það. Hikar, segir hæ og kunninginn svarar með kveðju um gleðilegt ár. Erfitt.

Venjan er að ef maður hefur ekki hitt viðkomandi á nýju ári þá óskar maður honum gleðilegs árs næst þegar maður hittir hann en það getur liðið langur tími. Hvað ef þú hittir hann næst í apríl, væri þá ekki viðeigandi að segja bara gleðilegt sumar? Ef komið er fram í júlí getur maður þá alveg eins bara sagt gleðileg jól.

Held að ef maður hittir suma kunningja sína sjaldan eigi maður bara að grípa tækifærið þegar það gefst og óska allan hringinn. Ef ég hitti sjaldgæfan kunningja bráðum ætla ég að óska honum gleðilegs árs (þessa árs og þess næsta), gleðilegra páska, gleðilegs sumars, gleðilegrar þjóðhátíðar, gleðilegra jóla og happy honika (til að vera alveg save).

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home