Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, febrúar 18

Líf milli lífa

Heyrði um daginn kenningu um það að við ættum öll okkar pásu. Að eftir lífið og dauðann væri eitthvað millibil hjá okkur áður en við fæddumst á ný. Líf milli lífa eiginlega. Góð kenning.

En hvar skyldum við þá vera á meðan þessu stendur og hversu lengi? Spurning. Er þetta eins og stoppustöð á Hlemmi kannski þar sem allir hittast og sitja stilltir á bekk þar til röðin komi að þeim. Bílstjórinn flauti, fylli vagninn og leggi af stað, Tvisturinn – Grandi/Vogar? Veit ekki.

En hver fer þá hvert og hver ræður?

Kannski fær maður úthlutað skiptimiða og getur ráðið upp í hvaða vagn maður hoppar. Hmmm... var að koma úr Breiðholtinu, held ég taki fjarkann vestur í bæ núna. Þetta er þó ekki líklegt fyrirkomulag. Nei, líklegra er að manni sé skipaður sess á einhverjum bekknum og þar sitji maður um stund með furðusvip (hvar í andsk er ég núna!). Síðan gangi yfirmaður strætómála, sem maður fréttir síðar að sé Guð, með kaskeiti á höfði og útdeilir örlögunum af röggsemi. Þú færð Græna kortið, þú færð strætómiða, þú getur labbað góði! Örlögin séu skrifuð á skiptimiða og þar standi hvert manni er ætlað að halda.

Hugsanlega ganga sumir þá fyrir, fá betri vagn og leiðarenda en aðrir. Gamlir og sjúkir úr síðasta lífi fái að sitja, meðan hinir ungu, heilbrigðu og hamingjusömu þurfa að standa. Kannski fá þeir sem áttu bágt líf síðast að fara í flottu harmonikku vagnana sem bruna beint með þá í góðu hverfin. Hinir sem höfðu prítt og sogað sæluna þurfi að taka gamla græna strætóinn sem þeir tíma bara í slæmu hverfin. Kannski.

Fær mann til að hugsa... Hvert skyldi manni vera skipað næst? Síðast var ég settur í tólfuna, Hlemmur – Fell og beint í efra Breiðholtið. Hvað skyldi standa á miðanum næst?

Leið 26, tölvufræðingur – Kalkútta/Indland? Leið 33, innfæddur og berfættur – Regnskógar/Amazon? Leið 45, Storkur, Thailand/Asía?

Spurning.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home