Um dag og veg i lifi Storks

mánudagur, mars 8

Ísland í dag

Sá um daginn viðtal í Íslandi í dag við Bjarna Ben nýjan þingmann D listans og Helga Hjörvar líka nýjan þingmann S lista. Málið var útspil og áætlun Björns dómsmálaráðherra að efla víkingasveitina og gera hana að einhvers konar afli gegn óöldum í miðbænum, Fellunum og í Stapanum kannski. Óljóst. Heyrðist þeir eiginlega karpa mest um hvort venjulegri löggu yrði fækkað um 5 eða aukið um 5 og hvort löggan ætti að eiga byssu eða ekki.

Hallaðist nú frekar á málstað Helga, sé ekki endilega þörf á mun öflugri víkingasveit – með þessum tilheyrandi kostnaði sem um ræðir.

Allavega. Það sem mér fannst þó athyglisvert við viðtalið var að horfa á þá tvo kappa karpa. Bjarni er gamall hafsent úr boltanum, stór rumur og illskeyttur í návígi. Tæklari held ég. Helgi lítur meira út fyrir að vera týpan sem kom með miða í leikfimi, sneiðir hjá fituröndum og drekkur aðeins jurtate. Gaur sem myndi fótbrotna í blaki.

Í hempu myndavélanna og með Jóhönnu og Þórhall á milli voru þeir báðir þó nokkuð brattir og gáfu hvergi eftir skoðunum sínum. Hafði þó einhvern veginn á tilfinningunni að Helgi væri ánægður með að þetta væri í beinni útsendingu og tugþúsundir vitna væru að mæna á þá. Fannst eins og Bjarni væri að hugsa, já já kallinn minn ég lem þig bara baksviðs og að Helgi var á svipinn eins og hann gæti lesið hugsanir.

Segi svona.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home