Jordan giljagaur?!
Var að spá í einu. Hver er eiginlega þessi Jordan? Gellan sem er alltaf á forsíðum bresku fræga-fólks blaðanna sem maður sér stundum á bensínstöðvunum. Ok, Hello og Bye held ég að þau heiti. Hef oft heyrt þetta nafn og stundum séð hana á forsíðunum en hvem i alverden er hún eiginlega? Afhverju er hún fræg og fyrir hvað? Er hún virkilega bara fræg fyrir að vera með stór brjóst og vera gjörn á að gilja gaura? Fræga gaura. Það er kannski málið - hún giljar bara þá frægu. Þetta er kannski eins og með konuna sem varð fræg af því að hún keypti baaara bjúgur. Jordan er konan sem giljar bara fræga og ríka gaura. Ok skil þetta núna.
Sá um daginn að hún er með Peter Andre. Peter Andre!!! Vá, það er draugur úr fortíðinni. Wannabe sem varð næstum því almost somebody og er núna búinn að meika það á ný. Kominn í flokkinn með þeim ríku og frægu á ný. Orðinn giljaður, búið að gilja hann. Nettur.
Sá í gær að Þór jakobsson veðurfræðingur er búinn að raka af sér alskeggið – kominn með yfirvaraskegg. Djös fagmaður.
Og heyrðu... heyrði í útvarpinu í morgun einhvern segja að Pixies væru að koma hingað til lands í maí. Er ekki búinn að gera upp við mig hvort ég eigi að trúa þessum fréttum en mikið lifandisskelfingaróskaplega væru það frááábærar fréttir!! Einhver sem á slúður fyrir lítinn Pixies strák?

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home