Saparmurat Niyazov
Forseti Túrkmenistans heitir Saparmurat Niyazov og myndu sumir segja hann týpískan fagmann. Líklega rétt. Hann er einráður í þessu fyrrum Sovétlýðveldi og einræðið er greinilega honum í blóð borið því hann stendur sig gríðarvel í hlutverkinu. Gerir allt eins og vænta mætti af einræðisherra.
Það ríkir engin lognmolla í kringum Sapa og það nýjasta hjá honum er að banna öllum að vera með skegg og láta hárið vaxa. Þetta á allavega við um karlana. Hefur hann skipað menntamálaráðuneytinu að fylgjast með hárvexti landsmanna enda hefur það embætti varla mikið annað að gera.
Sá einu sinni viðtal við hann 60 minutes þar sem farið var yfir önnur einræðisútspil Sapa. Hann er t.d. búinn að láta reisa trilljón myndir af sjálfum sér um allt land en sagðist nú ekki sjálfur hafa gaman af að sjá svona margar myndir af sér – fólkið vildi þetta einfaldlega. Nettur.
Svo fékk hann auðvitað leið á janúar, apríl, ágústi og öllum hinum mánuðunum og ákvað því að breyta um nafn á þeim öllum. Apríl heitir núna t.d. í höfuðið á mömmu hans. Mömmustrákur. Ekki hægt að kvarta yfir því. Þá hefur hann bannað óperur og ballettsýningar enda óþarfar. Enda óþarfar, sjá það nú allir.
Ég sé hann fyrir mér vakna um 10 leytið í höllinni sinni, rölta niður í eldhús í Joe Boxer náttfötunum, hella Cherioos skálina barmafulla og líta svo dreyminn út um hallargluggann. Lætur hugann reika um nýja hluti sem hann getur bannað. Örugglega erfitt að vera frjór svona snemma á morgnana. Ekkert alltaf létt að vera einráður.
Að Sapa sé forseti Túrkmenistan er eins Ruth söng: algjört furðuverk. Svona úps! tilfinning sem maður hlýtur að fá ef maður er Túrkmeni. Úps, við erum með geðveikan fooorseeeeta, hvað skyldi fólk halda?! Svolítið eins og vitleysan leiði rökin áfram í gegnum lífið.
Samt fagmaður.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home