Um dag og veg i lifi Storks

mánudagur, febrúar 23

Spegill á lífið?

Djö, hvað það væri áhugavert ef ég vaknaði einn daginn, færi öfugu megin fram úr rúminur, gengi afturábak út á bað og burstaði tennurnar með vinstri. Bakkaði því næst niður tröppurnar og stigi hægra megin inn í bílinn. bakkaði út úr stæðinu og héldi svo áfram að bakka alla leið í vinnuna. Á leið minni sæi ég að allir aðrir sem væru ferli væru í sömu sporum; bakkandi í bílunum sínum eða gangandi afturábak og jafnvel húsin virtust vagga á skáhöllum þökunum!

Hefði gaman af því.

Bakkaði svo inn í stæði í vinnunni, bakkaði inn í lyftuna, ýtti á neðsta takkann og færi út á efstu hæð. Byði gott kvöld og settis á stól í loftinu og léti lappirnar hanga niður í átt að gólfinu. Sæti svoleiðis allan daginn og bakkaði síðan heim á ný.

Stuð. Óvænt.

Eins og spegill á lífinu.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home