Um dag og veg i lifi Storks

þriðjudagur, maí 25

Konunglegt brúðkaup

Frábær svona konungleg brúðkaup eins og átti sér stað í föðurlandi mínu um daginn.

Prúðbúnir þegnar voru mættir með danska fánann til að sjá prinsinn giftast fögru prinsessunni frá framandi landinu í fjarskanistan. Meira að segja ódælir mp3 unglingar afléttu fýlusvipnum í tilefni dagsins.

Mér fannst ég vera vitni að lifandi tindátaleik, sérstaklega þegar myndavélin sveif hátt yfir og fólkið minnti allt á litla leikfangakalla sem einhver hefði raðað upp eftir Strikinu. Frikki prins, sem vanalega er borgaralega klæddur með rettu í annarri og Tuborg í hinni var nú uppstrílaður í miðaldalegan herbúning með kúski, púffi og glansandi medalíum. Eins og tindáti.

Frábært að geta horft á fortíðina í beinni útsendingu um hátækni ljósleiðara á þennan hátt og handritið líkt og skrifað af H.C. Andersen sjálfum Ævintýri í beinni. Auðvitað svolítil tímaskekkja en hvað um það? Lífið sjálft er lítil skekkja á hverjum degi; ein í viðbót skaðar engan. Samt tímaskekkja. Svolítið eins og úrin hafi ekki verið samstillt hjá aðlinum og almúganum fyrir langalöngu og aðallinn sé alltaf með ónýtt úr. Keyrir svo um göturnar í hestakerru undir hylli fólksins sem tekur þátt í platinu. Usss... ekki segja þeim frá 21. öldinni, þau eru ekki búin að fatta neitt!

Að vera prins og kóngur í dag er líklega svolítið eins og að leika leikrit í alvörunni. Alvöruleikrit. Líf manns verður hálfóraunverulegt og maður dettur í hlutverk. Fólk býst við að maður hagi sér ákveðinn hátt og klæði sig samkvæmt hlutverkinu. Heimili manns verður einskonar risa Legoland sem býður fjöldanum að koma við og skoða hið skrítna og skemmtilega. Tindátar og prinsessur fyrir túrismann og þjóðina.

Svolítið eins og að vera konunglegur raunveruleikari.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home