Um dag og veg i lifi Storks

föstudagur, maí 14

Friðrik og Merý

Brúðkaup í beinni og maður missir af frænda sínum segja ja tak. Frikki hafði nú reyndar ekkert fyrir því að bjóða mér og tuxeido-ið stendur því enn á... tuxeid-o leigunni. Ahhh well. Þurfti líka að vinna. Mér er alveg sama. Allt s.s. að verða vitlaust í DK og Merý að verða prinsessa. Gaman að því.

Einum Íslendingi var þó boðið en ákvað að mæta ekki. Sendi bara egypska konu sína sem fulltrúa Íslands í staðinn. Ekki það að Egyptar geti ekki verið góðir fulltrúar en veit ekki. Lélegt. Er reyndar sjálfur á móti þessu frumvarpi í þessari mynd og gæti verið mjög athyglisvert ef forsetinn gerði usla. En þar sem þetta klárast nú líklega ekki í dag, átti hann að fara. Ikk godt.

Dorrit hefur auðvitað ekki tekið í mál að hætta við, búin að kaupa demant, kjól og tilheyrandi. Líklega búin að læra að segja til lukku. Tillykke. Finnst að Óli hafi átt að mæta og skála með þeim stóru. Gefa svo frænda mínum íslenska ullarpeysu, íslenskt brennivín og íslenskan pony. Halda síðan danska ræðu.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home