Létt 967
Það var kveikt á Létt 967 í vinnunni hérna um daginn. Veitti því svo sem ekki mikla eftirtekt þannig séð. Þetta var Elton hér, Manilow þar eins og við mátti búast. Eyrun ráku þá í rogastans þegar ég heyrði þulinn ávarpa mig eftir lag með ABBA. Það var eitthvað á þá leið...
“Já, þetta var sko Winner takes it all með ABBA. Tjaaa ég er nú bara ekkert sammála þessu sko – að hérna sigurvegarinn taki allt saman” ! Hvað var þetta? Mér leið allt í einu eins og bjána yfir því að vera að hlusta. Var maðurinn að reyna að peppa mig og aðra hlustendur svona upp eða hvað? Er séð fyrir að allir sem hlusta á þessa stöð sé fólk með lítið sjálfsálit og lágt mat og það þurfi því á svona andlegri uppbygginu að halda milli laga frá plötusnúði?
Veit ekki
Þulurinn hefði alveg eins getað sagt, "já þú ert enginn aumingi, þetta er allt í lagi. Svona svona” Leiðinlegt þegar þulur talar niður til hlustenda; gerir ráð fyrir því að það sé smátt að innan og gerir það enn smærra með svona froðusnakki.
Ajax í beinni

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home