Uppfinning dagsins
Ég er nú enginn uppfinningamaður eins og pabbi hans Dóra sem hamaðist og hamaðist í skúrnum sínum við að finna og finna upp eitthvað sem var svo loks eitthvað sem þegar var upp fundið. Í Suður – Afríku eða álíka.
Var samt að velta fyrir mér einu sem gæti verið uppfinning mín. Umslög. Maður fær þau í hundruða tali á ári kannski og ALLTAF er jafn erfitt að opna þau. Maður byrjar á öðrum endanum og kemst bara ögn áður en lítill flipi rifnar af. Þú reynir aftur en kemur fyrir ekki. Annar lítill flipi rifnar af og þú átt enn langt í land að opna umslagið. Þetta endar svo á því auðvitað að maður missir stjórn á sér og rífur allt umslagið í tætlur (oft bara til að finna reikningsyfirlit).
Jú jú, bréfahnífur er fundinn upp en hver á svoleiðis nema heldri frænkur manns? Það hlýtur að vera til einfaldari leið. Uppfinning mín í dag er því umslag sem auðvelt er að opna. Það er þannig í skriflegri lýsingu:
Efst í hægri horni er örlítil rifgatalína sem auðvelt er að kljúfa með nög. Þá er inn er komið er hægt að renna fingri inn í umslagið og þannig opnað það allt á einfaldan, skjótan og handhægan hátt.
(c) Mine oh mine, jíhaaa!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home