Akkúrat
Sumir eru svona akkúrat fólk. Ég líka stundum. Er reyndar mitt á milli gaur eins ég hef áður sagt frá en það þýðir það líka að ég get stundum verið akkúrat og stundum svona easy going.
Þegar ég er akkúrat er ég alltaf á réttum tíma – vill ekki koma of seint. Ég er líka heiðarlegur – stend við það sem ég segi og skrifa. Ég er líka duglegur – skorast ekki undan, tek ábyrgð og stundum á einhverju sem er ekki mitt að ábyrgjast. Skila mínu. Ég er líka leiðinlegur – hlutirnir þurfa að vera svona og svona, annað er ótækt. Erfiður.
En ég get líka verið easy going. Þá er ég latur – ligg lengi upp í og fresta þvottinum og öðru til morguns. Slakur. Ég er líka óábyrgur – geri lítið úr hlutum og vandamálum. Þetta reddast. Alltaf og einhvern veginn. Ég er líka afstöðulítill – hlusta og heyri en framkvæmi ekki. Stundum við hæfi. Ekki alltaf. Ég er líka óreiða – á ekki veski undir peningana, bíllinn stundum mess og föt út um allt. Ég er líka afslappaður – klæði mig í grænar buxur og set skrítna húfu á höfuðið. Arka niður á Súffann. Drekk í mig kaffi og blöðin.
Held að það sé mjög mikilvægt að vera akkúrat en einnig afar óheppilegt að vera alltaf akkúrat. Held að það sé ekki gott að vera of easy going en mjög gott að geta verið það. Stundum.
Best held ég samt að sé að vera akkúrat easy going.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home