Um dag og veg i lifi Storks

þriðjudagur, júní 1

1. júní

Ég var svo þreyttur í morgun að skræka röddin í stelpunni sem vinnur á Esso stöðinni á horninu skar mig dýpra en nokkru sinni áður, alveg inn að svefnrofum og allt í kring um geispið mitt. Ég horfði á draumalandið hverfa sjónum mínum og kvaddi Lokbrá að fullu á Esso stöðinni. Eftir sjálflagað kaffið og brauðmetið skreið ég saman. Koffínið rann í gegnum líkamann og spýtti orku út í alla vessa. Augnlokin luku sér upp að fullu og ég starði athugull inn í tölvuskjáinn að nýju.

Vaknaður með Esso.

Flutti í gær. Næstum því allavega. Fór yfir eilífa fatahrúgu mína í fyrsta skipti í mörg mörg ár og vinsaði frá og valdi. Fleiru var nú vinsað frá en ég hefði kosið en eftir á að hyggja var það nú bara gott. Gott ég var ekki einn að vinsa. Minna vinsað þá. Hlutföllin urðu líka 70/30, vinsað/valið. Afraksturinn verður líklega til sölu í Kolaportinu um næstu helgi. Þannig að ef þér fýsir eins og eitt stykki Storkapeysa eða vesti frá 9. áratugnum (nánast) þá skaltu kíkja við.

Laugavegurinn góði er að renna sitt skeið á enda. Ég flyt á Njálsgötuna, nokkur á Baldursgötu og ein flytur sig um stutt set á Laugaveginum. Njáll og Baldur. Gömul og virðuleg íslensk nöfn, nýir og spennandi viðkomustaðir. Búið að vera stuð á L55 eins og við kölluðum heimili okkar stundum. Góður tími á enda og gamanið stoppaði áður en það kárnaði. Hlakka til að byrja nýtt stuð á nýjum stað. Gruna nú að samgangur hjá þeim Njáli, Baldri (og Þór) verði allmikill eftir sem áður enda hinir mestu mátar orðnir. Hvort sem er í samlífi eða í glaum. Gott ef þeir hoppi ekki bara allir út í heitu (djúpu) Laugina! Allavega kíki í heimsókn.

1. júní. Er sumarið þá ekki byrjað formlega og eiginlega?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home