Af nýjum síma og portfólki
Gekk út í sólina í morgun með nýjan síma í hendinni. Sony-alveg-að-verða-úreltur-Ericsson sími sem hentar mér bara vel. Stundum er ég hálf úreltur held ég, sérstaklega þegar kemur að nýjustu tækni og vísindi. En það er ok. Vill frekar vera þannig heldur en að vera eins og maðurinn í símabúðinni sem lýsti pixelupplausn og öðru á einhverjum myndavélasíma í þaula á meðan ég gapti bara og beið rólegur eftir því að hann hætti, til að geta spurt. Já já, hann tekur s.s. myndir þessi?
Símanum sem sagt stolið frá mér um helgina. Lagði hann frá mér í nokkrar mínútur í Kolaportinu og þrátt fyrir að ég væri á vappi í kringum hann allan tímann, þá hefur einhver gripið hann. Líklega einhver safnari sem þurfti einn gamlan í safnið. Kannski verður hann verðmætur seinna meir. Annars er spes að vera í Kolaportinu verð ég að segja. Mér finnst gaman að koma þangað við og við, kaupa harðfisk og grúska smá. Finna hitt og finna þetta sem er bara skemmtilegt. Fólk þarna er af ýmsum toga og í mismunandi erindum. Á meðan sumir eru bara að grúska að gamni er aðrir að karpa til kaupa. Sumir virðast reyndar kaupa til að karpa og svolítið magnað að heyra fólk prútta um 50 kall vegna peysu sem þeim líst vel á.
En lífið er í portinu. Og síminn minn örugglega bráðlega líka. Á sérstöku verði fyrir þig á 150 kall.
Slegið og samþykkt!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home