Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, júní 2

Sumir fá sumarfrí

Einn, tveir, þrír ... 24 snjóblettir ennþá í Esjunni og það er komið sumar. Kannski ekki svo mikið og hefðbundið stöff bara. Ég hef nokkrum sinnum verið spurður undanfarið hvað ég ætli að gera í sumar. Gera í sumar? Ég ætla bara ekki að gera neitt! Í fyrra var það í fyrsta skipti á ævinni sem ég átti sumarfrí og gat gert mér eitthvað til dundurs. Ég náði reyndar ekki eiga inni fullt frí en það voru þó nokkrir dagar.

Ég gat hins vegar lítið hreyft legg og lið vegna þess að ég er spila bolta á sumrin. Svona er það nú bara og ekkert við því að gera. Er ekkert að kvarta enda eigið val en fór samt að gæla við þá tilhugsun að fara einhvern tímann í sumarfrí, kannski í mánuð og fara bara eitthvað, út eða inn.! Út í heim eða hér heima. Magnað. En hvað myndi ég gera?

Gaman væri t.d. að hoppa upp í flugvél, fljúga á Stansted, þaðan áfram á meginlandið, leigja svo lítinn Austin Mini Cooper, bruna um Evrópu, stoppa svo á lítilli sveitakrá og borða franskan heimilismat hjá eldri hjónum sem heita Franciox og Juliet, dreypa á heimauppskeru Franciox og fá að sofa í hlöðunni því öll herbergi á gistiheimilinu voru upptekin, keyra svo eftir rúnt um Frakklandsriveru niður til Ítalíu og vara sig á brjáluðum ítölskum ökumönnum, brenna í sólinni niðri við ströndina og ruglast á gengi lírunnar um leið og maður kaupir sér dýrindis nýveidda kræklinga á litlum veitingastað við hafið vestan megin við langan legg Ítalíu, renna svo niður til Rómar og láta lögguna kalla á eftir sér Stanza því maður laumaðist til að príla í rústunum í Forum rústunum og láta svo Faðir Guiseppe banna manni að taka myndir í 6. kapellunni í Vatikaninu, borða pasta á túristagildruveitingastað þar sem hangir uppi mynd af ítalska landsliðinu, baða lúnum ferðafótum svo í gosbrunninn úr Fellini myndinni, halla sér á mjúkan kodda og vakna svo með stírur snemma til að ná flugvél. Heim.

Einhvern daginn. Einhvern daginn skal ég sko... fara í sumarfrí.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home