Babbinton
Öll eigum við sögur að segja. Sögur sem við segjum af sjálfum okkur og henta við mismunandi tækifæri. Við grípum færið þegar lykilorðið kemur og segjum, hey, ég hef einmitt lent í svipuðu! Ég á t.d. mína Strandbær-frá-helvíti sögu, nær-dauða-en-lífi sögu, misskilningur-í-síma sögu og svo framvegis. Á svo eina Badminton sögu.
Hef einu sinni á ævinni farið í badminton (fyrir utan einstaka leikfimi sveiflur). Hljóp í skarðið fyrir Ella einu sinni og spilaði með Gumma stress, Gunna og Eika. Gummi kallar sportið reyndar alltaf babbinton en það er samt sama íþróttin. Bara betra nafn.
Af leiknum sjálfum var það helst að frétta að Gummi fleygði sér horna og lína á milli til að koma fjöðrunum yfir netið og stórsá auðvitað á kallinum eftir átökin. Minntu taktarnir á gamla tíma þegar Gummi var vanur að fleygja sér frá öllum hornum og línum í handboltaleik með tilheyrandi Steffi Graf látum. Þau hljómuðu líka í BTR húsinu þetta kvöld.
Nema hvað.
Ég klæddi mig í Babbinton gallann minn, fékk úthlutað spaða og var klár í slaginn. Ég kom aðeins of seint og strákarnir voru þegar komnir inn í sal. Ég gekk því einn eftir löngum ganginum sem leiddi inn í salinn og var nokkuð spenntur. Í baddinton í fyrsta skipti. Í miðjum þessum pælingum mínum sé ég grilla í mann við hinn enda gangsins sem gengur í átt til mín. Þegar hann kemur nær þá sé ég að þetta er enginn annar enn Broddi Kristjánsson, faðir, móðurafi og sonur babbintons á Íslandi. Maður sem hefur sigrað alla á Íslandi oftar en hann sjálfur man og andstæðingarnir vilja muna. Maður sem hefur haldið það oft á Íslandsbikari að fingrafar hans stendur klístrað eftir um alla íslenska babbinton tíð. Ok segi svona.
Allavega.
Sá fyrsti sem ég hitti í mínu fyrsta babbintoni var sjálfur Broddi. Mér fannst það kúl. Ég lyfti enda spaðanum og sagði daginn. Fór svo og lét Gumma slá fjöðrum í hausinn á mér. Fjaðrafok hjá BTR þetta kvöld minnir mig. Minnir líka að ég hafi tapað.

4 Comments:
Hva hédddna - enginn linkur á Bjöggann - hvaða djö and ssssssssttissss
10:13 f.h.
Æji... já veit. Geri þetta við tækifæri. Þegar tími kemur mar!
1:14 e.h.
Öööööömurlegur gaur mar ! ! !
2:36 e.h.
Ahhh dem! Rétt kappi.
En eins og Babbinton þýðir það sama og badminton, þá hlýtur að gilda það sama um BTR. :)
9:42 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home