Um dag og veg i lifi Storks

þriðjudagur, júní 15

Dont let the suuuuun, go down on me yeeeet!

Sá aldrei til sólar í gær.

Langur dagur sem þýddi vinnu, fara með gamlar eigur á haugana, fundur, æfing, fundur og flytja eigulegar eigur á nýja staðinn minn á Njálsgötunni. Henti mér á koddann um 2 leytið held ég.

Fundur, æfing, fundur var ekki skemmtileg þátttaka. Leiðinlegar fréttir á fréttir sem þarf að vinna úr. Nóg um það hér.

Henti kengbogna, áratugagamla rúminu mínu á þremur fótum, gömlu Kassagerðarskrifborðinu mínu til 15 ára og bleika sófanum, sem einu sinni var grænn sem einu sinni var brúnn. 20 ár+ þar og ég man glögglega eftir því að ég og kallinn pápi minn lágum í sitthvorum endanum og horfðum á enska boltann. Á laugardögum kl. 3. Seinni árin sátu þar íbúar og gestgjafar bæði að horfa á sjónvarp en eins til á sitja og spjalla yfir bjórglasinu. Á laugardögum um 10 leytið.

Á nú hvorki rúm til að liggja í né sófa til að ... liggja í. Gerir þó ekkert til því að ég það bíður mín eitt og sitthvað gott í staðinn. Jafnvel og meira að segja miklu betra!

Slæmur dagur, góður dagur

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home