samráð í norðri?
Fannst synd að sjá Ítalina vini mína detta út í gær fyrir socialisterne frá Svíþjóð. Hef svo sem ekkert upp á þá að klaga og bæði Danmörk og Svíar með fín lið. Hélt samt með þeim bláu, di Azurri. Þeir geta samt sjálfir sér um kennt. Ekki með því að vinna ekki fleiri leiki eða hala inn fleiri stig. Auðvitað gætu þeir hafa gert það en orrustunni töpuðu þeir fyrir utan völlinn - í fjölmiðlunum þar sem þeir völdu alveg vitlausta taktík.
Hefðu þeir ekki ráðist á friðelskandi, ferkantaða og heiðvirða Scandinavana með ásökunum um svindl og samráð í Öskjuhlíðum í norðri; þá hefði þetta aldrei gerst. Hefði þeir bara kynt undir stoltið með því að segja að Danir og Svíar væru það miklir atvinnumenn að þeir myndu aldrei gera neitt annað en að vinna leikinn... Ítalía áfram. Tror jeg i hvert fald og ekki hefði heldur hlakkað svona. Í allri heimsbyggðinni nema mér og nokkrum tárvotum spagettístráum.
Öskjulaga skoðun kannski.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home