Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, júní 23

Tannsi

Hef alltaf verið með smá tannlæknafóbíu. Fór heldur ekki í mörg mörg ár en borðaði lítið slikk og burstaði vel. Eða hélt ég. Var hjá tannsa í hádeginu og hún gaf tönnunum góða einkunn en taktíkin mín fékk aaalveg falleinkunn. Enda leið mér eins og 7 ára í tíma hjá Önnu Johnsen í Hólabrekkuskóla hlýðandi athugull á yfirlestur skólatannlæknis þegar hún dró upp góminn! Dró s.s. upp góm og sýndi mér hvernig á að tannbursta, tvær strokur þarna, upp þarna, niður hér. Kanntu að nota tannþráð spurði hún svo. Ahmmujújúhjuújú mumlaði ég en áður en ég vissi þá var þráðurinn kominn milli tannanna í aðgerð. Hann var þó ekki stuttur og því allt í góðu. Fínt að fá kennslu og flashback í einu.

Púff. Man samt vel eftir yfirlestri og flúorinntöku í Breiðholtinu. Flúor inn og spýta. Bannað að kyngja, stóóórhættulegt! Heim svo með hjarta í buxum; lak ekki einn dropi niður?

Líklega slapp ég.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home