Um dag og veg i lifi Storks

þriðjudagur, júní 22

Að koma sér fyrir

Síðustu daga hef ég verið að reyna að koma mér fyrir ... án þess að vera fyrir.

Flutti eins og hefur komið fram, frá Laugaveginum í síðustu viku og mitt hafurtask fékk að fljóta með. Þ.e. sumt af því góða taski því ekki var pláss fyrir allt saman. Fór því sitthvað á haugana, annað í Góða Hirðinn og enn eitt ætla ég að bjóða Gumma frænda fyrir frítt. Ef hann kærir. Sig um.

Ég náði þó að smygla ýmsum hlutum með mér. Heppinn. Þar á meðal eru hlutir eins og hillan mín sem foreldrar mínir ,,stálu” í Danmörku, brúna seventies matarstellið, popppotturinn frá Dröngum og sjálfur ég með mínum göllum öllum. Feginn því.

Þó er nokkuð um klassík sem komst ekki fyrir og verður að geymast um tíma í skúrnum hjá pabba eða á hillu hjá mömmu. Þá leiðina fer t.d. Gullit plakatið mitt, gullhnötturinn, lampar, og eitthvað af leppum. Gref þetta þó flest upp að nýju. Tímdi ekki að henda.

En eins og er þá er ég að koma mér fyrir án þess að vera fyrir ... fyrir framtíðina.

Hljómar vel.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home