Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, júní 30

Eyrun full af ferskjum

Er með hellur og hvolsvelli í eyrunum eftir gærkvöldið.

Eftir æfingu í gær fékk ég emergency hringingu frá Ingibjörgu. Hún var búin að kaupa tvo miða á tónleika með einhverri söngkonu sem kallaði sig Peaches, tónleikarnir voru að byrja og ég yrði að gjöra svo vel að vera snöggur. Ég geystist því af stað og út í bíl og brunaði eins hratt og mátti. Eða mátti ekki því ég var auðvitað stoppaður af tveimur guðfræðinemum í sumarlöggubúningi. Segi svona. Mældist á 87 held ég, mátti ekki keyra á nema 60. Kom því soldið pirraður á tónleikana, sérstaklega var ég fýldur þegar ég fékk að vita að það væri nú líklega hálftími enn í konsertinn. Smá arrrg.

Þekkti ekki Peaches en mundi eftir lagi sem hét Peaches sem var nokkuð gott. Lagði ekki saman tvo og tvo fyrr en ég heyrði það svo á tónleikunum. Fyrri hluta tónleikanna var ég ennþá hálffúll yfir því að hafa lent í löggu en rokkið rak út púkana að lokum. Sándið var hrikalegt og skerandi en krafturinn sem betur fer enn meiri sem skilaði sér í dúndur konsert með svita, stage dive og rokkperlum. Nú jæja, allavega pönki, rokki og svitaperlum.

Í dag heyri ég þó ekki í nokkrum manni. Eyrun stútfull af ferskjum og hausinn haminn.

Helv djös löggan.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home