Tuttugasti
Heyrði í útvarpinu á leið í vinnuna í morgun að maður hefði brotist inn í Kvennaskólann í nótt, gripið með sér sitthvað lauslegt og stokkið svo flóttalegur út í myrkrið aftur. Nágrannar og lögregla komust á snoðir um manninn og sett var út leitarsveit. Hann fannst víst fljótlega þar sem hann húkti bak við runna í einum garða Þingholtanna. Líklega með úttroðna vasa af strokleðrum og krítum, já og kannski rauðan varalit.
Í dag er 20. ágúst og dagurinn sem þessum ólánsmanni var stungið inn vegna innbrots í kvennaskóla. Dagurinn er þó merkilegur fyrir aðrar og persónulegri sakir líka. Ég á afmæli. Í um heilt ár hef ég nefnilega ekki gengið einsamall um Þingholtið, lífið og barina.
Föstudagur og sólin skín. Esjan berstrípuð af öllum snjóhvítum klæðum sínum, en þó laus við alla spéhræðslu stendur stolt upp úr hafinu fyrir utan gluggann minn fyrir hvern til að sjá. Eða klífa. Sátt við hlutskipti sitt og samband við þá sem þykja vænt um hana. Eins og ég og mér finnst eins og við eigum það sameiginlegt, ég og Esjan. Þó svo ég sé aðeins eins árs. Hún kannski 5000.
Finnst ég hafa átt heilt ár sem hefur þroskað mig, bætt og breytt og allt þetta hefur gerst á aðeins örskotsstundu. Finnst mér. Þannig er tilfinningin og ég held að það sé góðs viti. Hef átt gott ár sem getur vonandi af sér fleiri. Og fleira kannski í leiðinni.
Ég er eins og hér.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home