Um dag og veg i lifi Storks

fimmtudagur, júlí 29

Groundhog dagur í Barcelona

Er að fara til Barcelona í fyrramálið og hlakka mikið til verð ég að segja . Hef einu sinni áður komið til borgarinnar við Nou Camp og það var árið 2000. Þetta var 5 daga ferð sem ég fór í með ítölskum skóla sem ég var í. Yfirlýst markmið var að taka þátt í innanhússfótboltamóti nokkurra evrópskra skóla en það sem mér og vinum mínum frá Noregi og Danmörku var efst í huga, var að skoða og upplifa borgina í Katalóníu. Djamma smá og ekki síður að horfa á boltann en spila. Fórum á Nou Camp.

Náðum þessu þó öllu á aðeins 5 dögum. Dagurinn gekk einhvern veginn þannig. Spiluðum fótbolta frá níu til tvö, stukkum upp í túristarútu og skoðuðum Gaudi garða og hús, borðuðum gourmet mat þess á milli og zikk zökkuðum annars um alla borg. Á kvöldin þræddum við svo skemmtistaði, sumir okkar til 6 á morgnana og svo upp aftur klukkan níu að spila fótbolta. Groundhog day í Katalóníu. Frábær ferð með snillingunum Sören, Espen og Kjetil. Og Alberto að sjálfsögðu.

Nú fer ég að heimsækja kærustuna sem er búin að vera þarna í 2 ½ viku. Mér er eiginlega sama hvað við gerum, það verður alltaf jafngott og skemmtilegt og fyrri ferðin. Og held ég meira að segja miklu betra.

Hlakka til að hitta hana á nýjum Groundhog degi í Katalóníu, upptekinn við að gera þess vegna ekki neitt.


1 Comments:

Blogger BJ said...

Þí hefur nú ekki verið einn að þessum 'sumum' sem vöktu til 6.

Hvernig er það - sörvera þeir litla bjóra í Barca ???

íihíhíhi´hi´híh

7:20 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home