Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, júlí 28

Skýrt frá Tolla

Fékk bréf frá tollstjóranum í Reykjavík um daginn. Eitthvað hafði misreiknast útreikningur á vsk greiðslu frá því ég var verktaki hér fyrir nokkru og ég fékk skilaboð á undarlegu dulmáli.  Réð dulmálið og kíkti til tollstjórans. Hann sagði mér að ég skuldaði 303 krónur. Allt í lagi með það, ég borgaði 303.

Fékk svo bréf frá Tolla um daginn þar sem útskýring á greiðslunni var einhvern veginn á þessa leið;

Staða fyrir greiðslu
Höfuðstóll 1606
Vextir -1606
Samtals 0

Staða eftir greiðslu
Höfuðstóll 1303
Vextir -1606
Samtals -303

Fjárhæð
Höfuðstóll -303
Vextir 0
Samtals -303

Innborgað -303

Staða -303

Gr. m. pen. kr. -303

Sem sagt skýrt og skilmerkilegt frá tollstjóranum eins og honum er lagið. Ég er allavega búinn að borga.

Held ég.





0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home