Um dag og veg i lifi Storks

þriðjudagur, júlí 20

Ný gata

Fann nýja götu í gær.

Rölti um Þingholtið í gærkvöldi eins og ég hef stundum gert og fann nýja götu. Fannst svolítið gaman að uppgötva nýja hluti í því sem ég hélt að væri áður fullkannað. Eins og Kólumbus Þingholtanna snéri ég inn þrönga götu sem birtist mér skyndilega á vinstri hönd.

Gatan var í raun þröngur stígur með húsum þétt sitt hvorum megin. Svo þröng að ég vissi í raun ekki hvort gatan væri göngustígur eða gata. Held að hún hafi verið bæði. Þegar ég gekk inn götuna gat ég heyrt orðaskipti, sjónvarpsstöðvasviptingar og diskaglamur frá íbúðum sittthvoru megin þessa mjóa stígs og mér leið eins svolítið eins og Gúlliver í putagötu.

Mér fannst ég þurfa að stíga varlega niður og halda olnbogunum með síðunni. Eins og ég væri of stór fyrir götuna og húsin, of stór fyrir þennan göngutúr. Nei varla. Sumar götur eru bara ekki greiðar og það er allt í lagi. Góð gata hugsaði ég með mér, ætli það sé pláss fyrir stóran mann í einu húsanna í svona lítilli götu? Pattaralegur köttur mætti mér, nuddaði sér óbeðinn upp við aðra löppina mína og heimtaði mjálmandi klapp á kollinn. Kannski að bjóða mig velkominn í hverfið.

Nú jæja. Kettirnir í götunni eru allavega ekki hræddir við stóra menn, hugsaði ég.

Þá þarf ég bara að finna hús sem passar.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Harastígur?

Lattestrákurinn.

11:53 e.h.

 
Blogger Darri said...

Ekki Harastígur nei (Kára?). Man hreinlega ekki hvað hún heitir en minnir að nafnið hafi verið langt miðað við stærðina!

12:40 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home