Míkróákvörðun um Makró stórt mál
Um daginn var hjá allsherjarþingi hinna sameinuðu þjóða greidd atkvæði með múrnum þeirra Ísraelsmanna. Flestar þjóðir greiddu reyndar gegn múrnum enda eðlilegt að berja í borð og mótmæla slíkum offorsavegg sem reistur er í nafni öryggis en mun örugglega minnka öryggi allra. Fyrir utan það að vera hreinn dónaskapur. Svona er þetta skrítið stundum.
Þau lönd sem greiddu atkvæði með múrnum (ef svo má segja) voru auðvitað Bandaríkin, litli bróðir hr. Kanada og hægri menn í Ástralíu ásamt þeirra samherjaþjóðum, Míkrónesíu, Marshall eyjum og Palú! Meðal þjóða sem voru ekki alveg vissir í sök sinni og sátu hjá voru Papúa-Nýja Gínea, Nárú og Salómonseyjar!
Veit ekki.
Það sem mér finnst merkilegast í þessu er.. Hvaðan kemur þessi stuðningur við múrinn hjá þessum Míkró míkró smáþjóðum? Hvað gerir það að verkum að tvær heimsálfur og ein stór þjóð og þrjú af þeim allra minnstu greiða atkvæði með múrnum en ekki restin af heiminum?? Talandi um gjá meðal þjóðanna! Furðulegt.
Ok mín kenning.
Fulltrúar þessara þriggja stórþjóða voru búnar að makka sig saman fyrir atkvæðagreiðsluna en búnir að gefast upp á því að fá fleiri þjóðir í lið með sér. Pirraðir og vonsviknir á leið á fundinn rekast þeir svo á fulltrúa Míkrónesíu, Marshall eyja og Palú sem óöruggir reyna að rata um ganga höfuðstððvanna með fábrotna enskukunnáttuna eina að vopni. Kemur upp prakkari í þá þrjá stóru og taka þeir dvergana hálstaki, bróka þá og hóta því að þeir fái ekki að vera með í eftirpartíinu um kvöldið.
3 micro atkvæði í hús á bjagaðri ensku.
Nei segi svona.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home