Um dag og veg i lifi Storks

þriðjudagur, október 5

Fiskbúð Einars

Borðaði ekki kjúkling í gær.

Ég og Ingibjörg fórum í litla fiskbúð við Rauðarárstíginn til að athuga með fisk í matinn. Fersk fiskilyktin mætti okkur strax í dyragættinni og í bláum slopp fyrir aftan borðið stóð eldri maður með stóískt bros á vörum. Einar stóð þar sjálfur og bauð okkur með brosi sínu og rólegu yfirbragði að koma nær. Úrvalið var mjög beisikk og við enduðum á því að velja okkur reykta ýsu og steinbítsbita og tókum með kartöflur og lauk. Einar pakkaði þessu vandlega inn í blátt plast og rétti okkur yfir borðið. Tók svo til við að reikna út hvað hann ætti að rukka okkur mikið. Tók hann penna og blað í hendi og setti verðin á þessum fjórum hlutum samviskusamlega upp eins og í barnaskólanum fyrir vestan í gamla daga. Hækkað upp í tug, geymdi einn, reiknaði niður o.sfrv. Komst svo að niðurstöðu með þetta fína verð – 643 krónur. Ég gægðist í laumi yfir borðið til að sjá hvort hann tæki debetkort fyrir teknískan leikmann eins og mig. Auðvitað gerði Einar það. Fiskurinn bragðaðist vel þótt ég segi sjálfur frá og þótt ég hafi eldað sjálfur! Ótrúlegt alveg.

Mæli með ferskum Einari

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Darri gamli hefur nú kunnað vel við sig þarna:) Vantaði bara að hann tæki ennþá gömlu krónurnar.
En hva steinbíturinn jafnvel betri en KFC?

G.

10:42 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

En til hamingju annars með að sleppa kjúklingnum eitt kvöld......þetta er eitt lítið skref fyrir DJ í átt að betri matarsmekk en mjög stórt skref fyrir íslenska kjúklingastofninn sem ku vera í mikilli lægð eftir að þú fluttir heim frá DK.

G.

10:45 f.h.

 
Blogger Darri said...

: ) Já það hefði verið frábært ef Einar hefði t.d. gefið mér til baka í gömlu grænu hundraðkallaseðlunum!

Tek lægðina á mig, verð að viðurkenna það.

11:48 f.h.

 
Blogger BJ said...

Djö ertu teknískur leikmaður Darri...

10:39 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home