Um dag og veg i lifi Storks

föstudagur, október 8

Skrúfusagan mín

Ég sagði eitt sinn að allir ættu sína sögu fyrir ólík tækifæri. Ég á eina skrúfusögu.

Ég var 13 ára og átti BMX hjól. Það var bilað og ég hafði sett það í viðgerð hjá Ása lagfæringamanni í Músík og Sport. Það hafði eitthvað með skrúfu eða réttara sagt skrúfubolta til að festa dekkið, að gera. Dag einn hringdi síminn og ég svaraði.

- Halló.
- Já, áttu bolta?
- Ha, bolta?
- Já svona skrúfubolta (óþolinmóður)
- Jaaa, já þú meinar! Bíddu aðeins.

Ég lagði símtólið frá mér og gekk inn í litla herbergið þar sem pabbi geymdi verkfærakassann sinn. Það var ekki um auðugan garð að gresja en ég byrjaði að róta til í kassanum.

- Hvað ertu að gera? (Mamma)
- Æji ég er að leita að boltum.
- Ha? Afhverju?
- Æji þetta er gaurinn upp í Músík og Sport. Honum vantar bolta.
- Vantar honum bolta? Getur hann ekki útvegað sína eigin bolta?
- Það veit ég ekkert mar! Hvað eigum við enga bolta!?
- Ég veit ekkert um það.
- Hey jú, hérna eru tveir. Mamma eigum við bara tvo bolta!?
- Veit ekki.

Ég hljóp aftur í símann. Viðmælandinn hafði beðið nokkra stund.

- Heyrðu, ég á hérna tvo bolta.
- Ha?! ... Áttu bara tvo bolta!!?
- Já. Einn svona nokkuð stór og hinn aðeins minni.
- (smá þögn) Bíddu hvar er þetta?
- Öhhh hérna á Arnarhrauninu...
- Arnarhrauni? Og er skilti utan á þar sem stendur Áhöld og verkfæri hf?
- Neeee þetta er bara svona íbúðarhúsnæði.
- Klikk (skellt á)

Ok. Kannski ekki Ási að hringja út af hjólinu.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Bwaaahahahahahaaa - þetta er snilldarsaga. Tvímælalaust mín uppáhalds Darrasaga.

Ali Daei

9:25 f.h.

 
Blogger Darri said...

Þessi var fyrir þig Ali Dai!

9:55 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home