Kjeld
Sá vingjarnlegan norskan píanóleikara í gær – sem eitt sinn var tíður gestur á sjónvarpsskjánum hér á Íslandi á níunda áratugnum. Þið mynduð þekkja hann úr Eurovision undankeppnum í sjónvarpssal og Hemma Gunn. Gott ef hann spilaði ekki með Icy hópnum í glaðlega bankanum. Þið þekkið hann. Nú man ég auðvitað ekki hvað hann heitir en mig minnir Kjeld... eitthvað. Lýsi hér með eftir fyllra nafni.
En fyrir þá sem muna eftir Kjeld... eitthvað, þá get ég staðfest það að nú – tæplega tuttugu árum síðar gengur Kjeld ENNÞÁ með svona mjóan, þunnan lufsuklút sem hann vefur nokkra hringi um hálsinn þar til endarnir standa tilviljanakennt út úr og eitthvert. Þannig var hann í Nóatúni í gær.. tjaaa bara svona eins og ekkert hefði í skorist! Sem mér finnst í sjálfu sér vera í senn – frétt dagsins og fagmennska.

6 Comments:
Heitir maðurinn ekki Jón Kjell Seljeseth? Var á sínum tíma Nick Rhodes Íslands. Einstaklega fingrafimur náungi.
En í dag hefur hann víst lagt nótunum og vinnur helst fyrir sér sem arkitekt. Það getur líka verið skýring á klútnum. Vala Matt er alla vega alltaf með svona klút. Man líka eftir Albínu Thordarsen með klút. Þetta er sennilega svona "thing" hjá arkitektum. Til að við hin eigum auðveldara með að spotta þá.
3:30 e.h.
Jón Gústafsson! Talandi um fleiri fagmenn... hvað næst? Geiri Sæm!?
Held við séum að nálgast hið rétta nafn. Það var eitthvað á þessa leið - Seljseth eða Seljedal eða álíka.
Góð kenning þetta með arkitektinn. Viss um að meirihluti arkitekta á Íslandi eru menntaðir í Danmörku - sem gæti útskýrt klútinn!
9:37 f.h.
Jamm - jeg man eftir nafninu Jon Kjell Seljeseth, hlýtur að vera hann, en hver er aftur Jón Gústafs. ??
??
3:07 e.h.
Minn kæri Bjerghvehn
Du bahra vejur að fara að horfa meira á sjónvarp.
10:00 f.h.
ég vil bara biðja viðstadda um að gera ekki grín að Geira Sæm..
Aftursæti í rauðum bíl er fallegt dægurlag...
1:47 e.h.
Já en Eggert, ert þetta þú? Hvar hefurðu haldið þig maður?
11:10 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home