Um dag og veg i lifi Storks

miðvikudagur, apríl 13

Stundin okkar

Átti stund með Heiðari um daginn. Heiðari snyrti.

Var að keyra Suðurlandsbrautina í áttina að Kentucky. Þegar ég nálgast gamla Sigtún, sem nú hýsir einhvers konar hreingerningarfyrirtæki – sé ég stóran trukk sem lagður var alveg við Brautina. Ég sá að stór ljósmynd prýddi alla hlið trukksins og þegar ég kom nær sá ég að myndin var af Heiðari snyrti og laxkonu hans úr Allt í drasli þættinum á Skjá einum. Auglýsingatrukkur sem sagt. Rétt í þann mund sem ég keyri svo framhjá sé ég skælbrosandi mann fyrir framan flennistóra myndina með myndavél og er að smella af.

Ég sá strax að þarna var mættur Heiðar sjálfur sem leist vel það sem hann sá. Brosið breiða náði enda yfir allt andlitið eins og Heiðari er lagið. Hann stóð brosandi gónandi.

Heiðar var þarna algjörlega í eigin heimi en ég laumaði mér inn með honum. Fékk að deila stundinni með honum – án þess að hann gerði sér grein fyrir. Úr andliti Heiðars skein stolt og ánægja og mér fannst ég geta lesið í hverja (bros)vipru. Fannst ég geta lesið þar að Heiðar hafði sveipað teppi yfir vonbrigðin forðum – nú væri hann sko kominn aftur. Öflugt kombakk, falleg móment. Ánægður með Heiðar. Maður á nefnilega alltaf að koma aftur. Ekkert gaman að fara án þess að snúa til baka einhvern tímann.

Verst að þátturinn stendur svolítið undir nafni.

3 Comments:

Blogger BJ said...

ííííhhhhíhíhíhh Kentucky ! ! !


Það er nú meiri viðbjóðurinn mar..

12:46 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Líka það sem greip mig helst við þessa sögu. Einhvern veginn er storkurinn alltaf á leiðinni í áttina að Kentucky eða á leiðinni frá Kentucky. Lífið er kjúklingur!!!!

3:34 e.h.

 
Blogger Darri said...

Grunaði nú að þetta yrði gripið!

Engum sem datt Fylkið í hug???!

2:06 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home