Eurovision á laugardegi
Rúv hefur klætt sig í Eurovision glansgalla síðustu laugardagskvöld. Fyrri hluta kvöldsins sett sig í stellingar í spurningakeppni um keppnina og svo strax á eftir klætt sig í allt glansið – í sjálfri undankeppninni.
Spurningakeppnin skemmtilega sveitó eitthvað og undarleg. Óskipulögð og spontant. Heiða spyr, Halli trommar á höfuð hennar fyrir ofan hana og skýtur trommukjuðaskotum á keppendur og svo er einhver Reynir Reynir sem situr í pukri í einu horninu og telur. Spyrjandi, dómari og teljari með nýju sniði. Hef grun um að þessi Reynir sé Eurovision Rain man sem fékk hugmynd að svona spurningakeppni, sendi Páli Magg tölvupóst og sér nú drauminn rætast. Og er sjálfur þátttakandi í honum.
Greinilega hefur engu verið sparað til - með sérútbúinni höll úti á Granda, grand sviði, þekktum kynnum og öðru glimmeri. Sem er bara gott mál. Þó er greinilegt að Rúv fæst ekki oft við hástemmdar útsendingar eins og þessar sem eiga líka að "looka" – markaðsvæn sjónvarpsframleiðsla eins og t.d. Idolið. Finnst ég geta merkt eftirvæntinguna og spenninginn sem því fylgir á skjánum. Sem gerir þetta bara að betra efni fyrir vikið.
Kynnarnir. 2 landsþekktir listamenn sem eru jafnólík og héri og hlébarði. Rós og regnskógur. Hann, óperusöngvari sem getur ekki talað, heldur raular talið sitt með andlitsgeiflum óperunnar. Ungur maður með andlit og fas föðurs síns. Hefur kannski hangið of mikið í austurrískum óperusölum innan um aldna drauga óperunnar sem aldrei yfirgefa senuna. Hún, svo pínulítil, virkar eins og búktalaradúkkan hans. Á meðan hann hreyfir varirnar varlega og myndar hljóðin sín í ristlinum er hún stífmáluð, starsýn á skjáinn og með frosið bros. Vélræn, hoppandi og skoppandi – hlær dillandi en hann svarar með hohoho hlátri yfirstéttarinnar.
Annars er þetta yndislegt bara. Íslendingar koma langt að með drauma og ný lög í handfarangrinum. Sumir alla leið frá útlandinu. Snúa heim aftur fyrir stutta viðkynningu – og stutt lag. Háar vonir, slæm lög, stutt stopp. Jákvætt, því í tilraununum getur gersemin leynst. Eflaust ágæt lög inn á milli.
Íslenskt sjónvarpsefni – frábært stöff.

1 Comments:
Reynir fagmaður!
11:16 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home